Næring á heimsmælikvarða

Nutricia er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á sérhæfðri klínískri næringu fyrir börn og fullorðna. Fyrirtækið er með starfstöðvar í 34 löndum og selur næringu til 74 landa í heiminum. Í Hollandi og Frakklandi eru staðsett rannsóknasetur þar sem starfa um 200 vísindamenn og mikil vinna er lögð í framþróun og þess gætt að vörurnar fylgi klínískum leiðbeiningum. Nutricia er eina fyrirtækið í heiminum sem sérhæfir sig eingöngu í klínískri næringu.

Umhverfisstefna Nutricia

Nutricia er með virka umhverfisstefnu hvað varðar framleiðslu á vörum og pakkningum. Markmið þeirra er að nota einungis græna orku þannig að framleiðsla þeirra verði enn vistvænni. Ytri umbúðir, þ.e. pakkningar utan um sondunæringu og næringardrykki, eru endurnýtanlegar og er markmið Nutricia að hafa allar pakkningar 100% endurnýtanlegar í náinni framtíð. Næringardrykkjaflöskur eru endurvinnanlegar og fæst skilagjald fyrir þær.

lesa meira

Hafa samband

Sjá upplýsingar um þjónustu, ráðgjöf og pantanir á Nutricia.

Nánar

Nutricia er með fjölbreytt úrval af næringu fyrir ólíka sjúklingahópa bæði hvað varðar næringu um slöngu, næringardrykki og ofnæmisnæringu fyrir börn

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðum Nutricia:

www.nutricia.dk
www.nutricia.com
www.nutilis.com
www.nutriciaflocare.com

Hér má finna fyrirlestra frá ýmsum ráðstefnum tengdum Nutricia:

www.nutriciacongresses.com